katla

Thursday, September 29, 2005

Eg hef verid klukkud

Her koma ta gagnslausar upplysingar um mig

Eg sef alltaf med hitapoka a veturna*
Eg borda ekki is**
Eg geng ekki med skartgripi ***
Eg a tannbursta a amk 5 heimilum****
Eg hef svindlad a profi*****

* med teim eru engar skuldbindingar
** verdur oglatt og veik ef eg borda is
***teir eru einfaldlega fyrir mer
**** sko ef eg er einhverstadar ta verd eg ad geta tannbustad mig eftir maltid
***** svindladi a profi i taknmali, kennarinn var heyrnarlaus og allir skiptust a svorum


Hun Karen Klukkadi mig tannig ad eg verd bara ad klukka hana Olofu mina, klukk Olof tu veist ad eg hleyp hradar en tu!!!

Monday, September 19, 2005

ballet i Laban

Hrillilega var erfitt ad halda aftur af hlátrinum í einum ballettímanum mínum í vikunni. En það gékk þó með herkjum. Ég var búin að vera inni í salnum ásamt öllum hópnum mínum að hita mig upp þegar kennarinn stormar inn alveg eins og hin virðulegasta mörgjæs í fyrstu posusjón. Maðurinn var í svörtum þröngum leggings (sem er ok) en svo var hann í stutterbabol sem var girtur niður í buxurnar, hvítum sokkum upp á miðja kálfa, og það sem best var voru stuttbuxurnar sem hann var í utan yfir allt þetta. Algert augna yndi. Um leið og hann var búinn að kynna sig og undirleikarann sem enginn náði stormaði hann að stönginni og sýndi fyrstu æfinguna með svo miklum harða og krafti að það var eins og verið væri að hraðspóla. Að sýningunni lokinni lagadi hann sjálfan sig í speglinum og gaf sjálfum sér lítið blikk. Svona gékk síðan allur tíminn að hann stormaði um í salnum og gaf æfingar með miklulm harða og að þeim loknum lagaði hann hárið á sér eða slétti búininginn sinn. Timinn var semsagt alveg einstakur og hann má eiga það kallinn að hann gerði bara fínar æfingar en hann hafði lítinn tíma til að leiðrétta okkur þar sem hans spegilmynd heillaði hann mest.

Saturday, September 10, 2005

Katla á markaðnum

Ummm, ferskt grænmeti, ferskir ávextir, og svona ódýrt. 5 Avikadó á eitt pund, melona á eitt pund, kíló af ferskum mais á eitt pund líka. Ég var örugglega í klukkutíma að labba á milli sölubásanna og reyna að ákveða hvað mig langaði í. Löngu síðar gékk ég klifjuð heim, en gleðin yfir þessum yndislega mat mínum var fljót að dofna þegar ég reyndi að troða þessu öllu inn í ísskápinn. Eg var alveg búin að gleyma að ég er bara með eina hillu í ísskápnum hér heima. Það var ekki létt verk að koma þessu öllu fyrir en með þrjóskunni minni fór þetta allt inn en núna er það bara að finna sér tíma til að borða þetta allt. Það er nefninlega gallinn við mig að ég get stundum ekki hamið mig þegar að matarinnkaupum kemur en að borða matinn vill stundum gleymast. Ég lét þó ísskpsmálin ekki buga mig heldur hlélt ég af stað í matvöru leiðanagur. Hva? Ég átti eftir að fylla skápinn minn inni í eldhúsi en hann er með 3 hillum og ætti að geta tekið þónokkuð af þurrvöru. Fyrir mér var þetta hin besta skemmtun fór í þessa risa búð sem var með svo mikið af tegundum sem ég hafði aldri séð áður þannig að ég varð að skoða allt. Nuna á ég semsagt mat fyrrir 4 fjolskyldur, og það ætti að duga mér einhvern tíma.


Formlega nemandi við Laban

Mér var hugsað til nemenda minna sem hafa verið að byrja í menntskólum þegar var leidd um nýjann skóla og fór á kynningu eftir kynningu en var samt eingu nær um hvernig þetta væri allt saman. Það er samt svolítið mikill munur á mínum skóla og menntaskólum, í mínum skóla er bar, sem er alltaf opinn á föstudögum eftir kennslu. Á ferð okkar um skólann fengum við síðan poka með upplýsingum og ýmsum glaðningi, nammi, hnetum, muffins, nælu sem segir að ég sé frábær dansari og smokkur. Já það er greynilegt hvað skólinn ætlast til af okkur!!!

Fyrsta inntokuprófið í London

Nei ég er nú ekki alveg orðin galin, búin að komast inn í þennan fína skóla mæta einn dag í hann og taka svo inntökupróf í companyið himherit. Nei nei, þetta var samt raunverulegt inntökupróf hja Andreas og Luca sem eru að fara að setja upp sýnigu hér í nóvember ég fékk bara að vera með mér til skemmtunar og gagns. Eftir að vera búin að svitna nokkra klukkutíma með þeim fékk ég að vera á hliðarlínunni og fylgjast með fystu æfingunni.

Monday, September 05, 2005

Sólríkan dag þrömmuðu þrír klifjaðir einstaklingar um götur Lundúna.

Já ég er flutt í húsið sem ég mun búa í að sinni. Það er ekki létt að flytja hérna, maður verður að fara með allt með sér í strædó eða lest og hjálpi mér ef ég færi að taka upp á því að kaupa mér húsgögn, á ég þá bara að skella því yfir öxlina á mér og þramma inn í strædó? Annars gékk flutningurinn minn vel þar sem ég var með góða aðstoð. Þegar við vorum búin að fá lyklana mína og hvíla okkur á gólfinu í herberginu mínu var ferðinni heitið í ASDA til að kaupa það sem vantaði. Luca vissi nákvæmlega hvað mig vantaði og var með allt á hreinu. Ég bara gékk um og henti í körfuna, sæng, koddi, sængurver, lag, handklæði, þvottapokar...

Allt kvöldið fór svo í að koma mér fyrir, raða fötunum mínum og finna stað fyrir allt með lélega popp tónlist sem udirspil er barst að utan. En við verðum að gera okkur grein fyrir því að ég er flutt til London og það er frekar hljóðbært hérna. En það var auðvitað líka laugardagskvöld. Ég lét þetta nú ekkert fara mikið í taugarnar á mér og dillaði mér bara með.

Ég hef nú ekki hitt meðleigendur mína mikið en einn er ekki fluttur inn, einn er í Hollandi og kemur á mánudaginn, einn er að fara til Finnlands í kvöld en kemur svo aftur að viku liðinni en María frá Eistlandi er búin að vera hérna síðustu daga og er bara ekkert á förum.

Friday, September 02, 2005

Tetta er ordinn veruleiki eg er flutt til London

Kom hingad a tridjudaginn og hef verid sidan a fullu ad leita mer ad ibud. Uff tad er nu ekki lett, en gaman ad sja hvernig hlutirnir eru her. For i hus i Greenwich. Konan var nu pinu skritinnn i simann og vard mjog hraedd tegar eg sagdist aetla ad koma med vinum minum, 2 karlmonnum, lifvordunum minum. Hun spurdi endalaust hvernig vinir hvad gera teir hvadan eru teir og allt. Tegar tangad var komid komum vid ad tessu litla dukkuhusi og furdulegasta kona tok a moti okkur, uff hun var eins og norn og let Andreas og Luca bida uti tvi hun vildi kynnast mer fyrst, var viss um ad hum setti mig i alog. husid var jafn skrytid og hun, ogedslegt, ekki verid hreynsad sidustu 10 ar. Nei takk ekki fyrir Kotlu.

....ment to be
Andreas, Luca og eg vorum a gangi og Luca ser fyrv. nemanda sinn hinumegin a gotunni, hey attu nokkud auka herbergi kallar hann og viti menn, JA. Hana vantadi einmitt i eitt herbergid i husinu sem hun er ad leiga. Vid hrodudum okkur ta nidur i Laban (skolinn minn) til ad hitta adra vinkonu hennar sem gat synt okkur husid sidar. Akvadum ad hittast um 2 a vid husid en vid attum eftir ad hitta einn "fasteigna skrifstofu kall" sem aetladi ad syna okkur ibudir. Med honum ferdudumst vid um alla borgina og tegar vid omum ad sidasta husinu gerdum vid okkur grein fyrir ad tetta vaeri i somu gotu og herbergid sem eg aetladi ad skoda. Tilviljun og fritt far, en ekki nog med tad heldur lagdi fasteinga kallinn beint fyrir utan husid sem vid attum sidar eftir ad skoda herbergid. Tilviljum..
Tilviljanirnar leiddu mig ad tessu ekta breska husi a morgum haedum sem verdur mitt heimili. I husinu verda 4 adrir sem eru allt nemendur i LABAN herbergid er uppi a ofarlega i husinu og sma undir sud, mjog fint og hreint. Sidan er stor stofa med risa gluggum sem vid deilum og sama gildir um 2 klosett, badker og eldhus sem er ad visu ferlega litid en tad verdur fint.

Allt er gott er endar vel.. eg flyt inn a morgun.