katla

Tuesday, March 08, 2005

Undur og stórmerki

Bílabasl Kötlu
Já viti menn ég braut mottóið mitt á sunnudaginn. Ég þreif bílinn minn. Ojjj enda var þetta ekki orðið heilbrigt ástand. En það var nú ekki létt. Auðvitað hefði ég getað farið í gegnum eina af þessum möru bílaþvottastöðvum en það voru biðraðir þar og Katla dont do biðraðir. Þá var bara málið að skella sér á næstu bensínstöð en ég var samt ekki alveg rétt búinn fyrir svona sull. Sunnudagurinn var gelludagur hjá mér og var ég klædd eftir því. Ég mæti á þvottaplánið og vippaði mér út úr bílnum í fullum skrúða. Manninum við hliðina á mér leist nú ekki á blikuna en brosti kurteisilega til mín og kinkaði kolli.
Á drullan að vera föst á bílnum? Það var ekki nokkur leið að ná þessari varnarhimnu af bílnum þannig að maðurinn vildi ólmur lána mér einhver efni til að bæta ástandið. Þarna juðaðist ég á bílnum á dágóðan tíma og slóst við slönguna sem datt af kústinum með þeim afleilðingum að ég varð blaut frá toppi til táar. Passaði þokkalega við gellu múnderinguna mína. En aðalmálið er að halda cool-inu og kippa sér ekki upp við minnustu óhöpp, þetta er allt partur af prógramminu.
Eftir eftir þessaa hörðu baráttu við minn helsta óvin (drulluna) keyrði ég sátt heim á skellóttum bíl og ætla að láta þessi þrif duga fram á sumarið.

Friday, March 04, 2005

Tölvunördið hún Katla

Já ég er formlega orðin tölvunörd. Ég þessi færa manneskja er orðin vefstjóri á heimasíðu Fíld sem er félag íslenskra listdansara, en ég sit þar víst líka í stjórn. Ég hvet fólk til að tékka á vinnunni minni, því ég er jú búinn að hárreyta mig yfir þessu síðustu daga til að reyna koma öllu inn en þetta er allt að koma núna.
Síðan er dance.is góða skemmtun.

Thursday, March 03, 2005

Frábært date

Hér kemur sagan:
21. febrúar. Ég fékk upphringingu kl 11 á mánudags morguninn, þá var ég í góðum 5 gír að verða allt of sein í bæinn eftir að hafa fest jeppann hans Gunnþórs upp í bústað (ég fer bara að kalla jeppann Fákinn eftir allt sem við höfum upplifað saman). En forsagan á því var að ég var í góðu yfirlæti uppi í Bræðraborg að njóta náttúrunnar og kynna Yaniv fyrir undrum hennar.
Sá sem raskaði ró minni þennan “friðsæla” morgun var vinur minn hann Palli og hann drap mig nærri af því sem hann bauð mér. Jú hann bauð mér til London í 2 nætur og áttum við að fara á e.u. frumsýningu. Ég vitaskuld fríkaði út og varð brjáluð yfir því að einhverjum skyldi detta í hug að bjóða mér svona fáranlegt tilboð. Vegna mottósins: “You only live ones” hringdi ég í vinnuveitendur mína og viti menn, ég get ekki átt betra fólk að. Katla ekkert mál við reddum þessu bara. Íslenska reddingin í hámarki.
Ferðin í gegnum Hvalfjarðargöngin gékk frekar hægt, hvað er með bíla sem geta ekki gefið í? Og ég á hraðferð. Ég var ekki komin heim fyrr en 12:15 og þá fór ég sem stormsveipur um íbúðina mína til að gera mig tilbúna en ég var sótt út á flugvöll tæpum klukkutíma síðar. Þetta er nú ekkert nema brjálæði.
Í London við lentum og ferðinni heitið á þetta fínasta hótel á besta stað í bænum, þar hélt ævintýrið áfram. Við fengum umslag merkt okkur þar sem boðsmiðarnir á frumsýningu myndarinnar Hitch leyndust og upplýsingar um komandi kvöld. Þá var ekkert annað til í dæminu en snæða í Covent Garden og safna kröftum fyrir Oxford streed daginn eftir.

22. febrúar Afmælisdagur Áslaugar haldinn hátíðlegur með karmellu kaupum, ananas snarli og púlsinn tekinn á Hm. Það var sannarlega óvænt ánægja að fá að tékka á búðunum og það er ótrúlegt hvað það er létt að versla svona þegar maður þarf bara að ganga með eitt kort á sér. Ekki mátti þó gleyma sér algerlega í búðarrápinu því stjörnurnar bíða ekki endalaust á rauða dreglinum og varð maður að gera sig kláran í slaginn.
Þetta var nú frekar halló að þramma þarna inn eftir rauða dreglinum og fylgjast síðan með mis frægu fólki sýna sig. En maður kvöldsins lét sig ekki vanta og heilsaði hann vitanlega upp á fræga íslenska fólkið, Hi Will whats up!


23. febrúar Það er einstaklega leiðinlegt að þurfa að tékka síg út um hádegi maður er alltaf á síðustu stundu. Þegar það var búið fór ég og ætlaði að hitta my darling Andreas en því miður þá lenti hann í veseni í vinnunni og gat ekki losnað en hann lofaði mér að fara að kíkja í heimsókn bráðum. Ég varð þá bara að borða allt kúlusúkkið sjálf og tölta um Covent Garden og hlusta á lifandi tónlist með gott kaffi í hönd.
Heimferðin gékk síðan vel og kom ég heil á höldnu heim eftir viðburðarríka ferð til London.
Svona á að gera þetta.

Þar sem ég náði ekki að hitta Andreas núna í London verð ég bara að ímynda mér knúsið frá honum :)