katla

Tuesday, January 25, 2005

Skrekkur


Já ég get nú ekki sagt annað en að ég sé stolt af mér. Í gær voru undanúrslitin fyrir Skrekk í Borgarleikhúsinu og mínir nemendur komust áfram húrra!!! Ég verð nú að monta mig pínu. Ég er búin að stýra Skrekk fyrir skólann í 3 ár og í öll skiptin hef ég komið mínum nemendum í úrslit. Ég get þó ekki sagt að þetta hafi verið einfalt í ár og hvað þetta er búið að kosta mig mikla orku.. En á svona stundu gleymist allt og er ég endalaust ánægð með krakkana mína. Þau eru búin að standa sig frábærlega og það verður frábært að fara með þeim aftur í Borgarleikhúsið eftir viku þegar við keppum við hina 5 skólana sem komast í úrslit.

Tuesday, January 18, 2005

Eru peningaseðlar komnir á síðasta söludag?

Ég pantaði pizzu í gær sem að vísu kemur afar sjaldan fyrir en ég brá út af vananum þar sem hann Yaniv minn var að sálast úr hungri og klukkan orðin allt of margt til að elda. En hvað um það þegar ég ætlaði að fara að borga pizzusendlinum þá gat hún ekki tekið við peningnum frá mér þar sem ég var bara með 5000 kall. Nei maður þarf víst að láta vita þegar maður pantar sér pizzu ef maður ætlar að borga með 5000 kalli. Sendlarnir geta víst ekki gengið með mikla skiptimynnt á sér. Halló!!!! Ég kann smá í reikningi!!! Ef pizza kostar hátt í 2000 kr þá þarf sendilinn nú ekki að hafa svo mikla peninga á sér. Með hverju á eiginlega að borga? Með blíðu? Nei þetta fór nú alveg með mig í gær. Til hvers erum við ennþá með þessa pappírsbleðla ef fyrirtæki eru hætt að taka á móti þeim?

Thursday, January 06, 2005

Einn tank á dag kemur skapinu í lag.

Bílabasl Kötlu

Það eru nú ekki allir sem ná að fara með einn tank af bensíni á einum degi. En þar sem ég hef einstaka hæfileika þá tókst mér það í gær. Ástæðan var nú ekki sú að ég keyrði svona mikið á kagganum mínum heldur tókst mér víst að gera gat á tankinn minn og 5500 krónurnar sem ég hafði dælt á bílinn minn fuku út í buskann. En þá er gott að vera dekurrófa og eiga mömmu sem er að heimsækja Hennis og félaga í Köben. Bílinn hennar er sko ekkert slor með gat á tankinum auk þess er hann búinn því mikilvægasta sem þarf í bílum, hita í sætum og topplúgu sem er einstaklega hentugt á þessum árstíma!!!

Wednesday, January 05, 2005

Jól í hjarta

Það eina sem fólk talar um núna er líkamsrækt. Allir í vinnunni minni liggja sveittir yfir auglýsingum frá líkamsræktarstöðvunum í leit að besta tilboðin til að gera sig ómótstæðilegan á met tíma. Markmiðið er í kjólinn eftir jólin. EN af hverju að vera svekkja sig á þessu, kjólum er hægt að breyta eða jafnvel að kaupa sér annan á útsölu.
Annars er ég búin að hafa það ferlega gott um jólin í faðmi fjölskyldu minnar. En auðvitað er ég ekkert betri en aðrir og misbauð ég líka sjálfum mér með mat en eftirsjáin er lítil þar sem þetta er allt saman partur af prógramminu.



Mæðgurnar á jólunum