katla

Monday, October 17, 2005

Sat í fangelsi

Föstudaginn 7. október sat ég i fangelsi hér i Lundúnum og satt best ad segja fór bara vel um mig.
Ég sat nú ekki inni fyrir neinn glæp þar sem ég er nú svo mikill engill, en ég var gestur i stóru kvennafangelsi. Þannig var að einn kennarinn minn fékk boð fyrir bekkinn minn um að koma í þetta fangelsi þar sem dansarar höfðu unnið með nokkrum föngum í 3 vikur og verkefninu lauk með sýningu. Þetta var ótrúleg sýning, konur í fangelsi sem áttu það sameiginlegt að hafa fengid tækifæri til að tjá sig í farvegi dansins. Engin af þeim hafði dansað opinberlega áður en það var mikill unaður að sá hversu yndislegar og einlægar þær voru í dansinum og sköpun sinni. Yndilegasta augnablikið var í þegar dansararnir voru klappaðir upp og nokkrar þeirra fóru ad brosa. Brosa því þær voru svo stolltar af sér, þeim hafði tekist að skapa og áhorfendur voru ánægðir og stolltir af þeim.

Innbrot á Halesworth Road

Veit nú ekki alveg hvort innbrot eigi ad kalla. María heyrði einhver læti úti í garði og brothljóð. En á neðrihæðinni hjá okkur er studio íbúð en sú íbúð stendur auð núna. Við þorðum ekki annað en að hringja á Lögguna því frá íbúðinni er auðvellt að brótast inn til okkar. Eftir 10 mín samtal Maija við lögguna birtist löggan já og skömmu síðar kom annar löggubíll og svo kom sá þriðji. Allur er varinn góður hér í Lundúnum. Auðvitað var enginn i íbúðinni en hvað vissum við það er betra að vera öruggur og alltaf gaman að fá besku lögguna í heimsókn.
(Húsið mitt er hvíta húsið)


Ljóskan í London

Ég er búin að vera að reyna útvega mér ryksupoka í 2 vikur og ég get sagt að það er ekkert grín að fá þá munadarvöru. Svo var það um helgina ad ég komst á snoðir um hvar hægt væri að fá varninginn. Í búðinna sem er ein af þessum sem selja allt á milli himins og jarðar var að finna nokkrar tegundir poka, en retta pokastærð? Tja allt má laginn hafa! Ég fann þó ryksugupoka í ryksuguna sem mamma átti fyrir 20 árum, ég efast það stórlega að nokkur eigi slíkar vélar lengur en hún var á stærð við krókódíl og fínasta farartæki þegar mamma var að ryksuga. Ég keypti þó eina tegund af pokum í von um að geta smellt þeim í. Auðvitad pössudu þeir ekki en annad sá ég þegar ég var að stússast við þessu ágætu ryksugu. Svo virðist sem pokinn i henni sé margnota og þarf maður að opna pokann og heypa öllu gossinu úr honum. Hverjum dettur annað eins ógeð í hug, ekki það að þetta sé e.a. umhverfistvænt, það fer nú ekki svo mikid af pappír í einn svona poka það er nú ekki eins og Bretinn viti hvað það er að flokka sorpið sitt. En hvað gerir maður ekki til að geta ryksugað heima hjá sér og því ekkert annað til í stöðunni en að fara með þennan fína ryksugupoka út í tunnu og draga drulluna úr honum. Ég hefði samt getað sparad margar búðarferðir og vangavelltur við afgreiðslufólk hefði ég bara athugað þennan poka aðeins betur áður en ég arkaði út í það að leyta af nýjum.

Thursday, October 06, 2005

"Afslappadur dagur"

Tratt fyrir ad dagurinn i gaer hafi verid full bokadur var hann ortulega afslappandi. Fyrsti taekni timinn minn var i Release-taekni, tar tarf madur ad "sleppa" vodvunum og lata addrattaraflid stjorna ser. Svo for eg i contact improv, og tar vorum vid ad gera hreyfingar med tvi ad geyspa, og eg geyspadi i einn og halfan tima. I lok dagsins var ballet en vanalegi kennarinn minn var ekki vid svo ad tad var frakki ad kenna. Eg var nu ekki alltaf ad skilja allt sem hann sagdi, skondid ad heyra balletordin med svona rosa framburdi en hann var allur i tvi ad lata okkur svifa um rymid. Heill dagur i work out an tess ad svitna. En ta var gott ad hjola heim og taka a i brekkunum og fa "ferskt loft" i lungu
Nuna er eg ad fara ut i bae til ad fara i cubuera tima en tad er brasilisk bardagaitrott, mjog skondid og katla tarf lika ad syngja tar, ogedslega erfidur timi samt. Svo stefni eg a ad fara sveitt og hress a liverpool stodina og pikka Hrund systir upp en hun aetlar ad kikja i kaffi.

Wednesday, October 05, 2005

Draumar

Draumar eru furdulegt fyrirbaeri sem eg hef alltaf verid heillud af, kannski vegna tess ad eg get ekki skilgreint ta. Tegar eg var litil dreymdi mig mjog oft sama drauminn nott eftir nott i morg ar. En tad er langt sidan ad tessi draumur kvaddi mig, en hver veit nema hann heimsaekji mig einn daginn aftur. Hvad er tad sem faer mann til ad dreyma slika steypu eins og svo oft er? Tad nyjasta i drumum eru draumar sem ganga a milli manna. Tannig er tad ad heima hja mer hafa fjorir upplifad sama drauminn, mismunandi naetur an tess ad hafa talad um drauminn sinn vid nokkurn. Hvernig stendur a tvi ad fjorum einstaklingum dreymi sama drauminn? Eg gaeti skilid tad ef allir hefdu verid ad horfa a somu biomynd en svo var ekki.
humm.. kannsi kemst eg ad tessu tegar eg verd eldri.