katla

Tuesday, January 25, 2005

Skrekkur


Já ég get nú ekki sagt annað en að ég sé stolt af mér. Í gær voru undanúrslitin fyrir Skrekk í Borgarleikhúsinu og mínir nemendur komust áfram húrra!!! Ég verð nú að monta mig pínu. Ég er búin að stýra Skrekk fyrir skólann í 3 ár og í öll skiptin hef ég komið mínum nemendum í úrslit. Ég get þó ekki sagt að þetta hafi verið einfalt í ár og hvað þetta er búið að kosta mig mikla orku.. En á svona stundu gleymist allt og er ég endalaust ánægð með krakkana mína. Þau eru búin að standa sig frábærlega og það verður frábært að fara með þeim aftur í Borgarleikhúsið eftir viku þegar við keppum við hina 5 skólana sem komast í úrslit.

2 Comments:

  • At 5:06 AM, Blogger Vala svala said…

    Til hamingju! Þú ert svo mikill snilli :)

     
  • At 12:41 AM, Blogger Katla said…

    Takk Völungurinn minn. Svo er bara vonandi að úrslitin í Skrekk verði send út á Popp tv, þá geta allir séð hvað ég er að kljást við á hverjum degi :)

     

Post a Comment

<< Home