katla

Tuesday, February 15, 2005

Tálkvendi eða góðlátlegir daðrarar

Mér er hugsað til þeirrar ímyndar sem íslenskar stúlkur hafa á sér. Vinkonur mínar lentu í Bretum úti í Köben sem voru með mjög staðlaðar myndir af lauslæti íslenskra stúlkna og er þetta ekkert einstakt dæmi, hver hefur ekki talað við útlending sem er fullur af þessum hugmyndum. Hvaða vita útlendingar um Ísland? Bláa lónið, Geysir og íslensku gellurnar. En þetta er ferlega sorglegt en hvert er sannleikskornið í þessu? Er þetta bara sprottið vegna auglysinga Icelandair ? Hegða íslenskar stúlkur sér á annan hátt en erlendar?
Ég spyr því erum við tálkvendi upp til hópa eða bara saklausar daðurdrósir?

Monday, February 14, 2005

Þetta er alveg glatað

Ég er búin að vera pirruð út af pistli sem ég heyrði í útvarpinu á föstudaginn en þegar ég ætla loksins að fara að ausa úr reiði minni man ég ekki nákvæmlega um hvað pistillinn var. Það eina sem situr eftir er pirringur vegna heimsku pistlahöfundar þar sem hún var að hampa framabraut nútíma kvenna en skaut sig svo ferlega í fótinn þegar hún sjálf var komin með fordóma og aldarmótar hugsunarhátt í garð kvenna og hlutverk þeirra í samfélaginu.

Wednesday, February 02, 2005

Bílabasl Kötlu heldur áfram

Ég var alger skvísa á sunnudaginn þegar ég bauð tveimur vinum mínum á sunnudagsrúntinn, stefnan var tekinn suður með sjó og markmiðið að sýna landið og enda svo í dekri í Bláa lóninu.
Ég er með þessa fínu ferð planaða og í svona ferð er best að hafa fínan bíl en ekki drossíuna mína þannig að ég var búin að parkera bílnum hans Gunnþórs í götunni hjá mér.
En viti menn, þegar halda skal af stað startar bílinn ekki. Halló!!! Hefur þetta ekki komið fyrir mig áður á bílnum hans Gunnþórs e.a. rámar mig í það? Galli engir kaplar í bílnum, þannig að ég hringi bara í Gunnþór sem kemur að vörmu spori. Ég varð þó að skokka til Hrundar og Palla fyrst til að redda mér köplum þar sem Gunnþórs voru víst komnir í krana. Eftir útkall, skokk og töf á sunnudagsferðinni minni komst Gunnþór að því að ekki vantaði rafmagn heldur hafði ljóskan hún Katla ekki sett í park á sjálfskipa jeppanum.
Smá ljóskulegt, en ég læt það ekki á mig fá.
Hvað get ég gert af því þó svo að ég sé bæði ljóska og frá Hafnarfirði!!