katla

Friday, April 29, 2005

Vorsýning Klassiska Listdansskólans

Sýningin tókst frábærlega þar sem okkar 140 nemendur stigu á stokk. Ég var ekkert smá stollt af mínum nemendum og allir ljómuðu af gleði.


Já ég er stundum prinsessa

Monday, April 11, 2005

Draumur í dós

8:10 Vakna
8:30 Nudd
10:00 Sund, synda og slaka á í pottinum
11:00 Kaffi til mömmu
12:00 Hádeigislúrinn
13:00 Balletæfing
15:00 Undirbúa ársátíð í vinnunni
16:00 Rennsli fyrir nemendasýninguna í ballet
19:00 Æfing í modern
21:00 Fylgjast með æfingu á árshátíðarleikriti
22:00 Taka á móti erlendum ferðamanni sem mun dvelja í viku
23:00 Bíltúr um borgina
24:00 Undir sæng með bók

Sunday, April 03, 2005

Annar Dráttur

Bílabasl Kötlu heldur áfram
Já já kagginn gaf upp öndina í vikunni. Ég braut öxulinn – uppps!! Þetta lítur ekki vel út í þetta skiptið þar sem öxulinn hefur verið soðinn saman áður. En hann Gunnþór minn mun sjá hvaða göldrum hann getur beitt, hver veit?

Engill mánaðarins
Hann Halli minn fær þennan titil hiklaust. Hann gerir allt fyrir litlu mágkonu sína. Hann er sífellt að hjálpa mér þegar ég þarf reddingu 1, 2 og 10 ( eins og alltaf) og núna birtist hann með tölvu til að lána mér þannig að ég geti farið á netið heima, en sú gamla gaf upp öndina eins og margir hlutir hjá mér. Síðan kom hann líka færandi hendi með bíl til að lána mér þar sem minn er ekki ökufær.
Halli þú ert engill.

Flörtkeppnin
Hún Vala er með flörtkeppnina á síðunni sinni núna. Ég hvet alla til að kíkja á þessar glæsilegu myndir og ekki gleyma að skoða áhugamálin. Þau geta hjálpað til við að gera upp hug sinn á því hver hlýtur titilinn flörtarinn eða eins og ég vil kalla það daðurdrós eða tálkvendi.

Saturday, April 02, 2005

Páskar 2005

Ekki fór ég til NY þessa páska og ekki fór ég upp í Bræðraborg. En samt sem áður rættist bara mjög vel úr páskunum hjá mér.

Skýrdagur: Stelpukvöld hjá Ólöfu. Það er ekkert skemmtilegra en að hittast og hafa heima- spa. Allar að striplast um á næríum, með tær í fótabaði, maska á andlitinu og lesandi upp úr Dúndur daður og Súper sex.

Föstudagurinn langi: Gula partýið hennar Ólafar og Völu Gula þeman var allsráðandi í fatavali, skreytingum og veitingum. Limbóið klikkaði ekki heldur og þrátt fyrir góða keppinauta náði meistarinn að vinna (Ólöf).

Páskadagur: Því að henda sér í sófann og úða í síg egginu sínu þegar möguleiki er á útivist? Þetta var frábær dagur þar sem við Ólöf tókum Teresu í göngu í Reykjardal í Hveragerði þar sem við böðuðum okkur í guðsgrænni náttúrunni í heitri á. Það versta var þó að þurfa að ganga aftur til baka eftir afslappandi bað en við komumst í bílinn með drullu upp að hnjám (sumar) og blautar fætur eftir ,,stórfljótin” á leiðinni.
Um kvöldið var ákveðið að vera eins og ekta ferðamaður og fara út að borða. Síðan var okkar mikilvæga starf að kynna Teresu fyrir næturlífinu tekið mjög alvarlega þar sem gert var plan yfir alla þá staði sem við þurftum að komast yfir. Kvöldið var ekki síðra en dagurinn en gott að komast heim og smakka á páskaegginu sínu.


Við í Reykjadal

Málshátturinn minn: Það dansar enginn við sjálfan sig.

Friday, April 01, 2005

Veik vegna saknaðar

Ísenskir víkingar verða ekki veikir.
Ég varð að sætta mig við að svo er ekki, vikuna fyrir páska. Ég varð veik en það er nokkuð sem ég upplifi sjaldan og kann bara ekki. En Salóme (3 ½ árs) kenndi mér ráð við því: ,, Katla mín þú verður bara að læra það og æfa þig í að vera veik.” Ég held að ég hafi fengið næga æfingu í bili og stefni ekki á fleiri, enda var þessi vika sú allra leiðinlegasta sem af er á árinu. En það spilaði líka inn í að ,, maðurinn minn” flutti frá mér til að verða frægur dansari í Noregi. En hvort það hafi verið ástæða veikinda minna? Tja... En það var frábært að hafa hann Yaniv sem meðleigjanda þessa mánuði og svo passaði hann líka svo einstaklega vel við sófann minn.
Nú er bara að sjá til hvort að hún Ólöf þurfi að finna heimili fyrir annan dansara sem sækist eftir því að koma hingað til að dansa. En ég er orðin óformlegur gestgjafi erlendra dansara sem dansa hjá Íd.