katla

Tuesday, October 26, 2004

Yndislegur dagur

Já þó maður sé nú í verkfalli þýðir það ekki að maður þurfi að hanga heima hjá sér og bíða!! Nei nei, heldur verður maður að nýta tímann. Ég skellti mér því með Ólöfu út að borða í hádeginu í gær og var það yndislegt. Við fórum auðvitað á heilsusamlegasta staðinn sem okkur datt til hugar og smökkuðum auk þess hveitigras skot sem er hakkað gras í glasi, svolítið spes... en afskaplega hollt. Til að fullkomna máltíðina keyptum við heilslusúkkulaði sem er ekki súkkulaði en við gátum ekki með nokkru móti borðað það. Þannig að ég á nóg eftir af ,,súkkulaðinu" og mun bjóða öllum sem þora að kíkja í heimsókn.
-Allt er vænt er velur grænt-

Screensaver


Á föstudaginn frumsýndi Íd verkið Screensaver. Ég tók sýninguna aðuvitað með trukki og mætti bæði á rennslið á fimmtudeginum og svo á frumsýninguna á föstudeginum, og ég varð ekki svikin þetta er frábær sýning og hvet ég alla til að fara á sýninguna og njóta þess sem gerist á sviðinu.

Thursday, October 21, 2004

Við gefumst ekki upp, við gefumst ekki upp!!


Ég skemmti mér konunglega í kröfugöngu kennara sem var í gær. Þetta er sérstök lífsreynsla að vera í verkfalli og fara í kröfugöngu. Ég var auðvitað ekki minni manneskja en aðrir og þrammaði með kröfuspjald niður Laugarveginn. Spjaldið gerðu samkennarar mínir sérstakelga handa mér "FYRIRVINNA ÓSKAST" Ég hefði e.t.v. átt að skella númerinu þarna á?

Tuesday, October 19, 2004

Nei ég kemst ekki, ég verð í Barbie

Þetta er flottast a afsökunin mín þessa dagana en svo var raunin að ég komst ekki með Ingu Gullna- hringinn á sunnudaginn því ég var búin að lofa mér í barbie.
Ástæða -- Jú ég var að efna loforð frá því í sumar að bjóða systrum Ólafar í heimsókn til að leika í barbie. Við skemmtum okkur konunglega í þessum ágæta leik í rúma tvo klukkutíma, en þegar Ólöf spurði hana Maríu um kvöldið hvernig hefði verið þá sagði hún: ,, við náðum varla neitt að leika".

Friday, October 15, 2004

Hoppað í rúminu



Smá sýnishorn úr afmælinu.
Ef þetta er ekki nýja líkamsræktin þá veit ég ekki hvað!! Ég mæli með þessari iðju fyrir alla en farið samt varlega!!

Sunday, October 10, 2004

Freyðivín og kökur

Já þá er afmælispakkanum lokið en ég hélt upp á afmælið mitt í gær. Ég átti yndislegan dag sem hófst auðvitað á ballet. En ég var mætt upp í studio fyrir kl 9 til að kenna floor-barre og síðan var tími hjá Lauren en þá tók við að kenna litlu dúllunum sem eru að stíga sín fyrstu skref í ballet.
Hvenær er ég svo á tíma?
Ég var auðvitað með handklæðið utan um mig þegar mamma kom færandi hendi með himin háan stafla af pönslum og reddaði hún undirbúningnum fyrir mig á meðan ég fór sem stormsveipur um fataskápin minn. Þegar fjölskyldan mín var síðan búin að fá nóg af sætindum var ráðist á pakkana með dyggri aðstoð stelpnanna. Ég verð nú að segja að hún Hrund systir fær verðlaum fyrir frumlegustu gjöfina en hún og fjölskynda gáfu mér Þróttara peysu. En þetta er búið að vera mikið grín þar sem Knattspyrnufélagið Þróttur hefur sama fangamark og ég KÞ. Nú er bara að fara að mæta á leikina í dressinu eða hvað? Tja...

Ekki má síðan gleyma kvöldinu og nóttinni en til mín mætti samansafn af frábæru fólki sem var allt staðráðið í því að skemmta sér og þeim sem í kringum það var. Ég held að það hafi bara tekist með eindæmum vel. En ég er samt ekki alveg búin að fá útskýringu á þessum tveimur kúlum sem ég er komin með á hausinn??
En öllum gleðskap lýkur að lokum... og þá er best að takast á við þrifin.


Tuesday, October 05, 2004

Skondinn launaseðill

Það er alltaf gaman að fá launaseðil en launaseðillinn sem ég fékk í síðustu viku sló öll met. Ég fékk nefninlega útborgaðar 0 kr. En svo var heldur ekki nokkur leið að skilja launaseðilinn þar sem mínus þættir voru miklu fleiri en það sem var í plús. Úps! Þetta þýðir þá að ég sklulda ríkinu!!!
En þetta er víst partur af "programmet"-- ég er í VERKFALLI

Sunday, October 03, 2004

Þetta er allt að koma

Já já er ég að breytast í tölvunörd eða hvað? Núna er ég búin að hanga yfir tölvunni með leiðbeiningar frá henni Völu minni um hvernig á nú að gera þetta almennilega og ekki nóg með það, ég er búin að breyta kósý kvöldinu þeirra Mjallar og Halla í sveitt kvöld yfir tölvunni... En.... nú held ég að þetta sé farið að koma hjá mér.