katla

Monday, December 20, 2004

Jólafrí

Hæ hó og jibbý jey það er komið jólafrí....

Kannski hljómar þetta ekki svo vel ef þetta er raulað en hvað með það. Búin að knúsa alla nemendur mína gleðileg jól og þá er bara komið að því að fara heim úr vinnunni og redda því sem gera þarf fyrir jólin. En þó ég sé vanalega ferlega skipulögð þá er ég ekki búin með allar jólagjafirnar. Hvað klikkaði? Ég var samt farin að fá martraðir í ágúst um að ég væri mætt í jólamatinn og væri síðan ekki með eina gjöfina en það er árlegt ágúst stress.
Fyrst á listanum mínum núna er þó að klára þessi jólakort. En í gær var gerð heiðarleg tilraun til að skrifa þau. Ég, Ólöf, Vala og Inga hittumst með jólaandann í hjarta en lítið varð um skrif og skelltum okkur því bara í bíó enda urðum við að tékka á George hennar Ólafar.
Hvernig er það annars með jólatré? Í fyrra fór ég ásamt Ólöfu þar sem við "veiddum" okkur jólatré í Vatnaskógi en það verður ekki leikið eftir í ár þannig að spurningin mín er, á ég að fara kaupa mér lifandi jólatré eða á ég að nota gervitréð sem ég á og eyða þá frekar þeim peningi sem sparast í e.a. annað? Kannski skó? Hvort endist lengur skórnir eða tréð, kannski eru skór líka dýrari, nema ég ákveði að kaupa risa tré, þá kemur þetta bara slétt út. Er það ekki annars?
Jólatrés veiðar 2003

Wednesday, December 08, 2004

Má ekki vera með varalit í vinnunni þinni?

Ég var svo heppin á sunnudaginn að fá auka systur mínar í heimsókn en það eru auðvitað litlu dúllu systur Ólafar. Það er frábært að fá þær í heimsókn og það sem kemur upp úr þeim er einstakt.
Stephanie: Katla hvað heitir pabbi þinn? Ég: hann heitir Þórarinn. Stephanie: ha heitir hann Smáralind?
Við þurftum síðan að fara í vinnuna til Ólafar og vorum að þvælast baksviðs þar eru uss merki (varir með putta yfir) út um allt og þegar Stephanie rak augun í merkið spurði hún: ,,Ólöf má ekki hafa varalit í vinnunni þinni"?

Það er líka svo gaman hvað krakkar eru einlægir og hreinskilnir
Stephanie: (Mjög hugsi og var ekki viss um réttmæti spurningarinnar) ,,Ólöf getur maður elskað vini sína?"
Ólöf : ,, Já aðvitað getum við það".
Sthephanie (með stórt bros) : ,, Þá elska ég þig Katla".
María: ,,Já þá elska ég þig líka"
Þetta er auðvitað endalaust væmið en það er svo gaman að muna eftir svona augnablikum.

Claudia, María og Stephanie á slóðum Línu Langsokks

Thursday, December 02, 2004

Þegar piparkökur bakast


Aðstoðardömur
Þegar piparkökur bakast
kökugerðarmaður tekur
fyrst af öllu steikarpottinn og
svo kíló magarín.....

Já í gær 1. des var komið að piparkökubakstri fjölskyldunnar. Við erum engin venjuleg fjölskylda þegar kemur að bakstri fyrir jólin. Allur baksturinn fer fram hjá mömmu og reyna síðan flestir að koma í hvert skipti. En það fara auðvitað nokkrir dagar þar sem aðeins ein tegund er bökuð í senn og er síðan öllum kökunum skipt á milli. Þetta hefur komið sér mjög vel ef maður kemst ekki en þá koma kökurnar bara í áskrift!
En allur þessi fjöldi af fólki þýðir vitaskuld mikið magn sem þarf að baka. Ég veit ekki hvort það sé eðlilegt en þegar bakaðar eru piparkökur bökum við úr 6 kg af hveiti, þannig að deigið sem fletja þarf út er um 10 kg. Til viðmiðunar er einföld uppskrift með 250 gr af hveiti!!!
En ég spyr er þetta ekki alveg normal?
En bíðið bara þar til við förum að skreyta kökurnar.