katla

Monday, September 19, 2005

ballet i Laban

Hrillilega var erfitt ad halda aftur af hlátrinum í einum ballettímanum mínum í vikunni. En það gékk þó með herkjum. Ég var búin að vera inni í salnum ásamt öllum hópnum mínum að hita mig upp þegar kennarinn stormar inn alveg eins og hin virðulegasta mörgjæs í fyrstu posusjón. Maðurinn var í svörtum þröngum leggings (sem er ok) en svo var hann í stutterbabol sem var girtur niður í buxurnar, hvítum sokkum upp á miðja kálfa, og það sem best var voru stuttbuxurnar sem hann var í utan yfir allt þetta. Algert augna yndi. Um leið og hann var búinn að kynna sig og undirleikarann sem enginn náði stormaði hann að stönginni og sýndi fyrstu æfinguna með svo miklum harða og krafti að það var eins og verið væri að hraðspóla. Að sýningunni lokinni lagadi hann sjálfan sig í speglinum og gaf sjálfum sér lítið blikk. Svona gékk síðan allur tíminn að hann stormaði um í salnum og gaf æfingar með miklulm harða og að þeim loknum lagaði hann hárið á sér eða slétti búininginn sinn. Timinn var semsagt alveg einstakur og hann má eiga það kallinn að hann gerði bara fínar æfingar en hann hafði lítinn tíma til að leiðrétta okkur þar sem hans spegilmynd heillaði hann mest.

3 Comments:

  • At 6:40 PM, Anonymous Anonymous said…

    KNúÚÚÚs! sæt myndin af þér hjá Völu - er þetta heima hjá þér?
    ætla að hringja í þig á morgun! á einhverjar ókeypis mínútur skv. símanum.
    já þessir ballettkennarar eru allir soldið skrýtnir!

     
  • At 6:13 AM, Anonymous Anonymous said…

    klukk!!! tharft ad skrifa núna 5 innihaldslitlar stadreyndir um sjálfa thig og klukka svo 5 adra! Enjoy!!!! :)

     
  • At 11:13 AM, Blogger Katla said…

    tetta er svindl, eg sem hleyp svo hratt!! ok ta eg skal segja e.a. um mig en tad hefdi verid kurteisara ad segja til hver tu ert.

     

Post a Comment

<< Home