Sólríkan dag þrömmuðu þrír klifjaðir einstaklingar um götur Lundúna.
Já ég er flutt í húsið sem ég mun búa í að sinni. Það er ekki létt að flytja hérna, maður verður að fara með allt með sér í strædó eða lest og hjálpi mér ef ég færi að taka upp á því að kaupa mér húsgögn, á ég þá bara að skella því yfir öxlina á mér og þramma inn í strædó? Annars gékk flutningurinn minn vel þar sem ég var með góða aðstoð. Þegar við vorum búin að fá lyklana mína og hvíla okkur á gólfinu í herberginu mínu var ferðinni heitið í ASDA til að kaupa það sem vantaði. Luca vissi nákvæmlega hvað mig vantaði og var með allt á hreinu. Ég bara gékk um og henti í körfuna, sæng, koddi, sængurver, lag, handklæði, þvottapokar...
Allt kvöldið fór svo í að koma mér fyrir, raða fötunum mínum og finna stað fyrir allt með lélega popp tónlist sem udirspil er barst að utan. En við verðum að gera okkur grein fyrir því að ég er flutt til London og það er frekar hljóðbært hérna. En það var auðvitað líka laugardagskvöld. Ég lét þetta nú ekkert fara mikið í taugarnar á mér og dillaði mér bara með.
Ég hef nú ekki hitt meðleigendur mína mikið en einn er ekki fluttur inn, einn er í Hollandi og kemur á mánudaginn, einn er að fara til Finnlands í kvöld en kemur svo aftur að viku liðinni en María frá Eistlandi er búin að vera hérna síðustu daga og er bara ekkert á förum.

2 Comments:
At 2:25 PM,
Vala svala said…
Eru einhverjir sætir meðleigendur? ;)
At 8:21 AM,
Katla said…
ja taer eru einstaklega fallegar
Post a Comment
<< Home