Undur og stórmerki
Bílabasl Kötlu
Já viti menn ég braut mottóið mitt á sunnudaginn. Ég þreif bílinn minn. Ojjj enda var þetta ekki orðið heilbrigt ástand. En það var nú ekki létt. Auðvitað hefði ég getað farið í gegnum eina af þessum möru bílaþvottastöðvum en það voru biðraðir þar og Katla dont do biðraðir. Þá var bara málið að skella sér á næstu bensínstöð en ég var samt ekki alveg rétt búinn fyrir svona sull. Sunnudagurinn var gelludagur hjá mér og var ég klædd eftir því. Ég mæti á þvottaplánið og vippaði mér út úr bílnum í fullum skrúða. Manninum við hliðina á mér leist nú ekki á blikuna en brosti kurteisilega til mín og kinkaði kolli.
Á drullan að vera föst á bílnum? Það var ekki nokkur leið að ná þessari varnarhimnu af bílnum þannig að maðurinn vildi ólmur lána mér einhver efni til að bæta ástandið. Þarna juðaðist ég á bílnum á dágóðan tíma og slóst við slönguna sem datt af kústinum með þeim afleilðingum að ég varð blaut frá toppi til táar. Passaði þokkalega við gellu múnderinguna mína. En aðalmálið er að halda cool-inu og kippa sér ekki upp við minnustu óhöpp, þetta er allt partur af prógramminu.
Eftir eftir þessaa hörðu baráttu við minn helsta óvin (drulluna) keyrði ég sátt heim á skellóttum bíl og ætla að láta þessi þrif duga fram á sumarið.

1 Comments:
At 2:58 AM,
Anonymous said…
þú og þitt bílabasl! guðdómleg lesning að vanda..áfram katla og bíllinn
Post a Comment
<< Home