katla

Wednesday, December 08, 2004

Má ekki vera með varalit í vinnunni þinni?

Ég var svo heppin á sunnudaginn að fá auka systur mínar í heimsókn en það eru auðvitað litlu dúllu systur Ólafar. Það er frábært að fá þær í heimsókn og það sem kemur upp úr þeim er einstakt.
Stephanie: Katla hvað heitir pabbi þinn? Ég: hann heitir Þórarinn. Stephanie: ha heitir hann Smáralind?
Við þurftum síðan að fara í vinnuna til Ólafar og vorum að þvælast baksviðs þar eru uss merki (varir með putta yfir) út um allt og þegar Stephanie rak augun í merkið spurði hún: ,,Ólöf má ekki hafa varalit í vinnunni þinni"?

Það er líka svo gaman hvað krakkar eru einlægir og hreinskilnir
Stephanie: (Mjög hugsi og var ekki viss um réttmæti spurningarinnar) ,,Ólöf getur maður elskað vini sína?"
Ólöf : ,, Já aðvitað getum við það".
Sthephanie (með stórt bros) : ,, Þá elska ég þig Katla".
María: ,,Já þá elska ég þig líka"
Þetta er auðvitað endalaust væmið en það er svo gaman að muna eftir svona augnablikum.

Claudia, María og Stephanie á slóðum Línu Langsokks

3 Comments:

  • At 2:59 AM, Anonymous Anonymous said…

    Þú ertekkert smá klár að gera heimasíðuna þína! að lesa, þó að ég hitti þig á hverjum degi og heyri sögurnar þínar líka beint í æð!

     
  • At 2:37 AM, Blogger irusvirus said…

    Æi, vá, hvað þær eru sætar.
    Katla, þá elska ég þig líka :)

     
  • At 3:59 AM, Anonymous Anonymous said…

    Hæ sæta!! ég var að búa til nýja síðu! karensisco.blogdrive.com! endilega kíktu þangað! ;)
    kveðja
    Agent Karen Sisco

     

Post a Comment

<< Home