katla

Wednesday, November 24, 2004

London var æði

Ég fór í nokkra daga stopp til London um daginn til að heimsækja vin minn Andreas og til að eyða peningunum mínu. En maður þarf alltaf að fara af landi brott til að eyða.
Ég átti yndislegan tíma úti, ég kom á fimmtudegi og eftir ljúft flug þar sem ég hafði endalaus sæti fyrir mig þvældist ég um í lestarkerfi London. Að lokum fann ég Andreas á lestarstöðinni og heim héldum við þar sem kærastinn hans Luca beið með mat handa mér. Svona var þetta síðan allan tímann. Ég var eins og prinsessa. Luca smurði þar að auki brauðið mitt á morgnanna og hræriði í kaffinu mínu. En auðvitað gerði ég margt fleira en að borða. Ég fór í skoðaði Laban sem er ferlega flottur dansskóli, fór í danstíma með Luca, fór á sýningu þar sem Andreas var að sýna og á Listasafn. En Andreas er að reyna kenna mér allt um listir.

Áslaug mætti á svæðið
Áslaug sem er vel kunnug í London bókaði okkur á hótel sem getur ekki verið meira niður í bæ, sem var frábært því þá þurftum við ekki að þvælast langar leiðir til að tékka á búðunum. En ég var nú ekkert allt of dugleg að eyða í búðunum þó ég hafi getað klárað nokkrar jólagjafir, ég eyddi örugglega mun meira í mat og kaffi. En Starbucks er á hverju horni og ekkert betra en að setjast inn eða grípa með sér einn Latte.

Mjöll og Magga mættu á svæðið
Já það er ekki oft að maður geti hitt fullt af fólk sem maður þekkir í útlöndum. En við systurnar vorum báðar í London á sama tíma og því urðum við að hittast. Málið var að fara á Bridget Jones, sem var hrein snilld og ekki verra að fara á hana í London sjálfri.

Ferðin var í alla staði frábær og tímasetningin gat ekki verið betri því þá slapp ég við kennaraflensuna miklu sem geisaði á Íslandi á mánudag og þriðjudag. Hjúkk.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home