katla

Monday, June 12, 2006

Útskriftargjöf


Já ég veit að ég er ekki útskrifuð ennþá en ég bara gat ekki á mér setið á laugardaginn og eyddi allt of miklu í ferlega hættulegri búð. Ég fór með Súsi í Bloch búðina og það var bara allt svo girnileg þannig að ég endaði með því að kaupa mér ferlega flottan dansgalla, dansskó og tösku. Þannig að ef einhverjum lagar til að gefa mér göf er þeim him sama velkomið að leggja í púkk fyrir eyðslu minni....

Annars var helgin frábær. Í hadeginu á Laugardaginn hitti ég Palla og við fórum í Picnik við höllina til að halda upp á að útskriftina hans. Síðan hitti ég Súsi niðri í bæ með þeim afleiðingum að ég eyddi allt of miklu í dansföt, Þaðan var ferðinni heitið aftur í Greenwich þar sem við fórum með Carinu í garð picnik. Þegar garðinum lokaði var ferðinni heitið niður að Cutty Sark en þar fengum við einkatónleika og fengum síðan alla til að syngja afmælissönginn undir fullu tungli. Á sunnudagsmorgunin vöktum við Súsi Carinu með báli (afmæliskertum), söng, kökku og kampavíni klæddar í fatnað dagsins - bikiny. Síðan fékk Carina nokkrar mín til að finna sig til fyrir óvissuferð dagsins. Ferðinni var heitið til Brighton þar sem var buslað í sjónum og borðað allan daginn. Hljómar vel en sjórinn var ískaldur, ströndin hörð og mistur, en æðislegt samt sem áður.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home