Próflok

Þá er komið að því ég er búin í pófum þar sem ég kláraði í dag. Þetta þýðir þó ekki að skólinn minn sé búinn þar sem næsa vika verður samkvæmt stundaskrá og æfingar fyrir vekið sem ég verð að sýna þann 16. og 17. júní. En amk þarf ég ekki að vera með neitt stress lengur, húrra. Í dag ákvað ég að gefa mér frí eftir prófin mín og tölti ein um í veðurblíðunni. Þetta var bara hinn yndislegasti dagur, og svo veit ég að helgin á eftir að verða góð. Á morgun mun ég hitta Palla í útskriftar hádegisverð, síðan hitti ég hana Súsi þar sem við ætlum að kaupa afmælisgjöf handa Carina. Á sunnudaginn ælum við svo að halda upp á dagin hennar með pompi og prakt og fara með henni til Brighton og sjá sjóinn. En Carina á víst ekki afmæli fyrr en eftir mánuð en þá erum við ekki á sama landinu þannig að við ákváðum að halda upp á það núna um helgina og það er bara skemmtilegra, því ekki að eiga afmæli oft á ári.


3 Comments:
At 4:19 AM,
Anonymous said…
Til hamingju með prófin skvísa, sendi þér bestu kveðjur til London. Ég verð að hrósa myndinni af þér, þvílík fyrirsæta!
Bestu kveðjur, Rakel
At 1:37 PM,
Katla said…
Vá það er þá ennþá einhver sem hélt í vonina um að ég bloggaði aftur. Já ég er ferlega ánægð með myndina, svona er að eiga vini sem eru atvinnuljómsyndarar....
At 1:07 PM,
Anonymous said…
VINI sem eru atvinnuljósmyndara??? ;)
Post a Comment
<< Home