katla

Thursday, June 29, 2006

Konungleg heimsókn, en enginn heima


Skellti mér til Windsor kastala með Súsi til að heimsæja Drottningu, en hún var vant við látin og gat því miður ekki tekið á móti okkur í þetta skiptið. En þetta var alveg frábær ferð hjá okkur, og ekki slæmt að komast á svona konunglegar slóðir. Við gengum þarna um bæinn og fengum okkur piknic í garðinum við höllina gengum niður við Times og nutum veðurblíðunnar. Á leiðinni heim urðum við síðan svo þreyttar að við sváfum alla lestaferðina eftir erfiðan afslappandi dag.

3 Comments:

  • At 3:47 AM, Anonymous Anonymous said…

    Halló Katla, það er alltaf gaman að lesa bloggið, þú gerir heilmikið og skemmtilegt. Bestu kveðjur úr sveitinni á Íslandi og hafðu það sem best og skemmtilegast áfram. Gréta.

     
  • At 1:30 AM, Blogger irusvirus said…

    Þú hefðir átt að láta mig vita með smá fyrirvara því ég hefði getað látið Möggu vinkonu hringja í Betu til að taka á móti ykkur.

    XXX
    Íris

     
  • At 5:22 AM, Blogger irusvirus said…

    Bloggaðu kona!

     

Post a Comment

<< Home