Fótbolti og meiri fótbolti

Já þetta er nú meira brjálæðið hér í Englandi það gegnur allt út á fótboltann og ekkert annað þessa dagana. Það hlakkar nú í mér að vita hvernig viðbrögðin verða hér þegar blessaðir Englendingarnir detta úr keppninni, hi hi hi. Ég ákváð þó að reyna skylja þessa menningu og ákvaða að gerast ekta Englendingur. Ég fór á pöbb eftir skóla til að fylgjast með leiknum England - Svíþjóð. OK það er engin furða að allir sekmmta sér svona vel yfir boltanum, það voru allir með bjór í hendinni. Stemmingin var mjög skemmtileg en ég passaði ekki alveg inni þar sem ég lærði af pabba mínum að halda alltaf með andstæðu liði til að ögra hinum. Ég get ekki sagt annað en að ég hafi fengið einkennilegt augnarráð þegar ég hoppaði upp til að fagna fyrra marki Svía, þannig að ég var nú ekki eins brött á mér þegar síðara markið var skorað, allur varinn er góður þó þetta hafi nú verið meinlausar fótboltabullur í kringum mig.
Svo er það annað, jú ég veit að ég er í Englandi, fólk þarf nú ekki að mynna mig á það á með fánum sínum, fyrr má nú vera, fáninn príðir flest hús og bíla ekki talandi um fatnaðinn á fólki og allskonar aukahlutir.


3 Comments:
At 1:07 AM,
Anonymous said…
Áfram england :-)
Kv. Drífa
At 8:52 PM,
Anonymous said…
Það er nú ákveðið afrek að komast lifandi út...
At 1:28 AM,
irusvirus said…
Hahaha. Það var tekin mynd af mér, Ásdísi og hennar fagra enska fórnarlambi vöfðum inn í enska fánann þegar við vorum í Búlgaríu.
XXX
Íris
es. ég hélt líka með Svíþjóð.
Post a Comment
<< Home