katla

Monday, March 13, 2006

Vinsæll ferðamannastaður

Mjöll og fjölskylda í heimskókn.
Mjöll, Halli, Frosti og Logi komu í heimsókn í lok febrúar og fórum við í ferðalag til Salsbury, Bath og skruppum rétt yfir til Wales. Það var yndislegt að að geta verið með fjölskyldu sinni og gera e.a. allt annað en vanalega. Það sem stóð upp ur ferðinni var að koma til Bath sem er mjög fallegur bær og aðsetur Jane Austin, en hún er uppáhalds höfundur Mjallar þar sem hún skrifaði bókin Prige and predjuge, þar sem hinn eini sanni Mr.Darcy kemur við sögu. Það var ekki hægt annað en að heilsa upp á herrann en hann var ekki heima þennan dag þannig að við Mjöll urðum að láta okkur lynda að kaupa mynd af honum sem príðir núna arenhilluna mína og stofuvegginn hennar. Já já við systurnar erum stundum klikk.

London er vinsæll ferðamannastaður
Helgina á eftir Mjöll og fjölskyldu komu Andrea og Palli í heimsókn og það má með sönnu segja að neðanjarðarkerfið hafi verlið tekið með trompi þá helgina. Andrea kom hingað til að taka inntökupróf og fékk ég heiðurinn af því að fylgja henni og grey Palli fékk ekkert val og þurfti bara að skella sér líka með í inntökuprófið. Á laugardeginum hittum við Palli síðan Gyðuna okkar niðri í bæ og þá var sko tekið á skemmtana gírnum og lentum síðan í æsispennandi ferðalagi á leiðinni heim. Þetta var virkilega annasöm helgi hjá mér en vel þess virði þar sem það er yndislegt að að vinir manns vilji heimsækja sig.

Á mánudeginum tók skólinn við og ég get ekki sagt annað en þessi vikar er búin að vera einstaklega annasöm. Þetta var síðast vikan mín í skólanum þessa önn þar sem ég er á leiðinni í Vettvangsnám til Cardiff. Síðast vika fyrir annaskil þýðir auðvitað ekkert annað en póf og verkefni. Ég fór í próf í öllum danstæknunum, ég þurftið að kenna tíma í unglingaskóla, og þurfti að skila lokaverkefni í Choreolocial studies sem saman stóð af ritgerð, fyrir lestri, og dansa. En þetta var auðvitað ekki nóg fyrir mig þar sem ég dansaði og æfði fyrir tvær dansstuttmyndir. Þrátt fyrir þetta brjálæði í mér get ég ekki neitað að svitinn og orkan sem fór í þetta allt saman var þess virði og ánæjan þegar allt var búið á föstudagskvöldið og við fórum út að borða var ólýsanlegur. Bara eins og þegar maður lýkur við sýningu og allt er mögulegt.

En núna er ég á leiðinni á vit ævintýranna í Wales þar sem ég verð hjá Völu í viku og mun læra allt um Rubican Dance Agency þar sem ég verð að vinna.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home