Öskubuska

Já það er ekki slæmt að vera öskubuska í einn dag, daginn sem hún fer á dansleikinn en sleppa við allt skúrið og srúbbið. Ég átti Öskubusku dag þegar ég skellti mér með vinkonum mínum til Vínar á Vínardansleik. Já þetta var alger draumur og ég var marga daga að komast aftur niður á jörðina. Danslelikurinn var hanldinn í einum af höllum Keisara embættisins, húsinu er ekki hægt að lýsa almennilega frekar en ballinu sem var gersamlega draumur frá upphafi til enda. Þarna lét maður sig liða um dansgólfið í glæsilegum vals og hvert sem ég fór var ég virðulega leidd um svæðið af date-inu mínu. En þar sem þetta var svona virðulegt ball tók Susi vinkona ekki í mál að ég færi án herra þannig að kæristinn hennar var settur í það að finna mér herra fyrir ballið, en hann býr þarna í Vín. Þetta var því frekar skondið að fara á Vínardansleik og fara á blint stefnumót, en það var bara gaman enda hafði ég vinkonur mínar með mér.
Þrátt fyrir skotferð með það að markmiði að fara á dansleikinn var timi til að skoða hvað Vín hefur upp á bjóða, falleg hús, almennilegt fólk og Sacher. Það er ekki hægt að fara til Vínar án þess að fara á Hotel Sacher þar sem þjónarnir eru uppáklæddir og fá sér eina köku og kaffi með. Eftir góðan dag þurfti að halda heim til að byrja á fegurðaraðgerðunum fyrir kvöldið sem Susi styrði þar ég varð að verða tilbúinn áður en herran minn kæmi, það gékk nú ekki áfallalaust fyrir sig þar sem mér tókst að flæka hárbusta í hausnum á mér og þrátt fyrir endalausar tilraunir Carinu og Susi að rífa hann úr mér varð að kippa hárið að lokum, en hvað, hárið á mér hefur bara aldrei verið flottara. Ég fer nú ekki að kippa mér upp við smá klipp.
Í alla staði var þetta ferðaleg frábært og hver veit nema að maður geri þetta að árlegum viðbuði í tilverunni.

Eftir fegurðaraðgerðirnar

Í marmarasalnum


3 Comments:
At 9:01 AM,
Anonymous said…
Vá þetta hefur örugglega verið geggjað!! :)
At 8:59 AM,
Anonymous said…
Wow svona á lífið að vera, Vínardansleikur eins og þú segir eflaust algjör draumur. Og Vín svo falleg og yndisleg borg. Sachertertan svíkur heldur engann!
Vala
At 1:05 PM,
Katla said…
Já þetta var æði, og takk fyrir að skrifa ég hélt að ég væri orðin ein í heiminum...
Post a Comment
<< Home