katla

Monday, February 13, 2006

Ferðalag um England


Já Það gengur nú ekki að búa hér í Englandi og fara aldrei út fyrir borgina, þannig að því var kippt í lag í dag. Ég var varadekkið í ferðalaginu þar sem ég fór með Carinu, Súsi og kærustum þeirra en ég lét það nú ekki á mig fá þar sem ég fékk að sjá sjóinn og ferstkt loft í lungu. Dagurinn byrjaði snemma þar sem ég ákvað að baka eina Betty til að hafa í nesti, alltaf gott að geta gaukað að samferðafólki sínu, en svo varð ég að mæta heim til þeirra fyrir kl 9. Þá var ferðinni heitið á bílaleiguna sem tók nú smá tíma til að finna. Þá var bara að koma sér út úr borginni og ferðinni var heitið suður, til Westbound og Brighton til að sjá sjóinn. Þetta var alveg stórkostlegt þar sem ströndin á þessu svæði er hreint ævintýraleg, sjóslípaðir steinar, hvít björg, forvitnileg hús, grænt gras, þröngir vegir og þoka. Í Brighton gafst mér svo tækifæri á að komast í rússibana, Vá.... það er svo gaman en skelfilegt að segja frá því að það er meira en 10 ár síðan ég fór í rússibana síðast, uss!!!!
En núna er kominn tími til að fara að sofa, og nýta tíman svo vel þessa vikuna þar sem það er mið önn og engin kennsla en verkefni sem þarf að gera í staðinn.

3 Comments:

  • At 9:33 AM, Anonymous Anonymous said…

    Sæl frænka, við verðum að reyna að hittast þegar þú kemur aftur á klakann!!!! kveðja Margrét Unnur

     
  • At 2:29 PM, Anonymous Anonymous said…

    Gott hjá þér að komast út fyrir London. Góða skemmtun hjá ykkur Mjöll. Kveðja Drífa

     
  • At 11:48 AM, Anonymous Anonymous said…

    hæ sæta- þú komst á síðuna mína! takk! ég er þá ekki alveg ein í heiminum að lesa sjálfa mig! Já Brighton er falleg og líka þú

     

Post a Comment

<< Home