Sat í fangelsi
Föstudaginn 7. október sat ég i fangelsi hér i Lundúnum og satt best ad segja fór bara vel um mig.
Ég sat nú ekki inni fyrir neinn glæp þar sem ég er nú svo mikill engill, en ég var gestur i stóru kvennafangelsi. Þannig var að einn kennarinn minn fékk boð fyrir bekkinn minn um að koma í þetta fangelsi þar sem dansarar höfðu unnið með nokkrum föngum í 3 vikur og verkefninu lauk með sýningu. Þetta var ótrúleg sýning, konur í fangelsi sem áttu það sameiginlegt að hafa fengid tækifæri til að tjá sig í farvegi dansins. Engin af þeim hafði dansað opinberlega áður en það var mikill unaður að sá hversu yndislegar og einlægar þær voru í dansinum og sköpun sinni. Yndilegasta augnablikið var í þegar dansararnir voru klappaðir upp og nokkrar þeirra fóru ad brosa. Brosa því þær voru svo stolltar af sér, þeim hafði tekist að skapa og áhorfendur voru ánægðir og stolltir af þeim.

Innbrot á Halesworth Road
Veit nú ekki alveg hvort innbrot eigi ad kalla. María heyrði einhver læti úti í garði og brothljóð. En á neðrihæðinni hjá okkur er studio íbúð en sú íbúð stendur auð núna. Við þorðum ekki annað en að hringja á Lögguna því frá íbúðinni er auðvellt að brótast inn til okkar. Eftir 10 mín samtal Maija við lögguna birtist löggan já og skömmu síðar kom annar löggubíll og svo kom sá þriðji. Allur er varinn góður hér í Lundúnum. Auðvitað var enginn i íbúðinni en hvað vissum við það er betra að vera öruggur og alltaf gaman að fá besku lögguna í heimsókn.(Húsið mitt er hvíta húsið)
Ljóskan í London
Ég er búin að vera að reyna útvega mér ryksupoka í 2 vikur og ég get sagt að það er ekkert grín að fá þá munadarvöru. Svo var það um helgina ad ég komst á snoðir um hvar hægt væri að fá varninginn. Í búðinna sem er ein af þessum sem selja allt á milli himins og jarðar var að finna nokkrar tegundir poka, en retta pokastærð? Tja allt má laginn hafa! Ég fann þó ryksugupoka í ryksuguna sem mamma átti fyrir 20 árum, ég efast það stórlega að nokkur eigi slíkar vélar lengur en hún var á stærð við krókódíl og fínasta farartæki þegar mamma var að ryksuga. Ég keypti þó eina tegund af pokum í von um að geta smellt þeim í. Auðvitad pössudu þeir ekki en annad sá ég þegar ég var að stússast við þessu ágætu ryksugu. Svo virðist sem pokinn i henni sé margnota og þarf maður að opna pokann og heypa öllu gossinu úr honum. Hverjum dettur annað eins ógeð í hug, ekki það að þetta sé e.a. umhverfistvænt, það fer nú ekki svo mikid af pappír í einn svona poka það er nú ekki eins og Bretinn viti hvað það er að flokka sorpið sitt. En hvað gerir maður ekki til að geta ryksugað heima hjá sér og því ekkert annað til í stöðunni en að fara með þennan fína ryksugupoka út í tunnu og draga drulluna úr honum. Ég hefði samt getað sparad margar búðarferðir og vangavelltur við afgreiðslufólk hefði ég bara athugað þennan poka aðeins betur áður en ég arkaði út í það að leyta af nýjum.

2 Comments:
At 6:50 AM,
Vala svala said…
Ýkt gaman að lesa bloggið þitt og fá fréttir :) Ég varð líka hálf skelkuð og hélt að þér hefði stungið í jeilið af löggunum með hattana! Bið að heilsa og nú hefur maður enga afsökun á að fjárfesta ekki í ferð til London á næstunni... hömm hömm :)
At 7:52 AM,
Katla said…
Endilega ad kikja i kaffi bara ad boka med sma fyrirvara og hver veit nema tad verdu uppabuid rum lika!!
Post a Comment
<< Home