Tálkvendi eða góðlátlegir daðrarar
Mér er hugsað til þeirrar ímyndar sem íslenskar stúlkur hafa á sér. Vinkonur mínar lentu í Bretum úti í Köben sem voru með mjög staðlaðar myndir af lauslæti íslenskra stúlkna og er þetta ekkert einstakt dæmi, hver hefur ekki talað við útlending sem er fullur af þessum hugmyndum. Hvaða vita útlendingar um Ísland? Bláa lónið, Geysir og íslensku gellurnar. En þetta er ferlega sorglegt en hvert er sannleikskornið í þessu? Er þetta bara sprottið vegna auglysinga Icelandair ? Hegða íslenskar stúlkur sér á annan hátt en erlendar?
Ég spyr því erum við tálkvendi upp til hópa eða bara saklausar daðurdrósir?
Ég spyr því erum við tálkvendi upp til hópa eða bara saklausar daðurdrósir?


4 Comments:
At 2:22 AM,
irusvirus said…
Já, dísess. Ég var á staðnum. Einn gaurinn með risastóran giftingahring spurði mig hvað hann gæti gert á Íslandi. Ég fór að tala um þau náttúrufyrirbrigði sem mér datt helst í hug, en maðurinn var ekki spor áhugasamur svo hann spurði hreinskilnislegar og ítrekað (þar sem ég var ekki að ná eftir hverju hann var að fiska): en hvað með stelpurnar? Mundu þær vilja breta? Bjóst hann við að ég mundi svara: já, íslenskar stelpur glenna á sér klofið fyrir hvern útlending sem á landið stígur fæti. Svo fór hann að reyna að lokka mig út með sér í vikunni. Ömurlegt að hitta svona lið sem setur samasemmerki á milli íslenskrar konu og lauslætisdrósar.
Held samt að þeir sem hafa komist í tæri við íslenskan kvenkost séu ekki í vafa að um er að ræða stórhættulegar valkyrjur. Maður þarf nú ekki að líta lengra en á Grýlu og Leppalúða!
At 2:23 AM,
irusvirus said…
Og Grýla er sko engin hóra!
At 3:17 AM,
Katla said…
Nei Grýla er gella en hún var bókað ekki daðrari heldur hefur hún verið tálkvendi.
At 10:52 AM,
Vala svala said…
Grýla er pottþétt tálkvendi fyrst hún nældi í leppalúða eins forljót og hún er og hún átti alveg 13 krakka með kallinum!
Ég var líka stödd með bresku gaurunum og finnst mér þessar auglýsingar alveg ýta undir fáránlegar hugsanir hjá útlendingum! Kannski ekkert skrýtið að þessi bresku gaurar tryllist þar sem breskar konur þykja vera frekar öglí svona upp til hópa (það hef ég allavegana heyrt frá íslenskum karlmönnum án þess að ætla að dæma það sjálf). Það var tekið flott á þessu fáránlega dæmi í byrjunaratriðinu í kvikmyndinni Dís! :)
Post a Comment
<< Home