katla

Wednesday, February 02, 2005

Bílabasl Kötlu heldur áfram

Ég var alger skvísa á sunnudaginn þegar ég bauð tveimur vinum mínum á sunnudagsrúntinn, stefnan var tekinn suður með sjó og markmiðið að sýna landið og enda svo í dekri í Bláa lóninu.
Ég er með þessa fínu ferð planaða og í svona ferð er best að hafa fínan bíl en ekki drossíuna mína þannig að ég var búin að parkera bílnum hans Gunnþórs í götunni hjá mér.
En viti menn, þegar halda skal af stað startar bílinn ekki. Halló!!! Hefur þetta ekki komið fyrir mig áður á bílnum hans Gunnþórs e.a. rámar mig í það? Galli engir kaplar í bílnum, þannig að ég hringi bara í Gunnþór sem kemur að vörmu spori. Ég varð þó að skokka til Hrundar og Palla fyrst til að redda mér köplum þar sem Gunnþórs voru víst komnir í krana. Eftir útkall, skokk og töf á sunnudagsferðinni minni komst Gunnþór að því að ekki vantaði rafmagn heldur hafði ljóskan hún Katla ekki sett í park á sjálfskipa jeppanum.
Smá ljóskulegt, en ég læt það ekki á mig fá.
Hvað get ég gert af því þó svo að ég sé bæði ljóska og frá Hafnarfirði!!



3 Comments:

  • At 5:50 PM, Blogger Vala svala said…

    Hmm... eitthvað finnst mér vanta meira um þig og þessa vini þína þ.e.a.s. þessa tvo karlkyns dansara í bláa lóninu :) Ég væri alveg til í að fara með tveimur karlkyns dönsurum í bláa lónið allavega ;)

     
  • At 12:35 AM, Blogger Katla said…

    Humm.. :) Hvað þarf ég að segja, er ekki betra að hver og einn noti hugmyndaauðga sinn ;)

     
  • At 4:07 AM, Blogger irusvirus said…

    Mér finnst eiginlega að þú hefðir átt að bjóða Völu með líka. Hefði ég verið á landinu hefði mér sárnað gríðarlega að fá ekki þessa fögru sýn litið augum á sundskýlu einni klæða, því, allir karlmannnsdansarar eru guðdómlegir.

     

Post a Comment

<< Home