katla

Monday, December 20, 2004

Jólafrí

Hæ hó og jibbý jey það er komið jólafrí....

Kannski hljómar þetta ekki svo vel ef þetta er raulað en hvað með það. Búin að knúsa alla nemendur mína gleðileg jól og þá er bara komið að því að fara heim úr vinnunni og redda því sem gera þarf fyrir jólin. En þó ég sé vanalega ferlega skipulögð þá er ég ekki búin með allar jólagjafirnar. Hvað klikkaði? Ég var samt farin að fá martraðir í ágúst um að ég væri mætt í jólamatinn og væri síðan ekki með eina gjöfina en það er árlegt ágúst stress.
Fyrst á listanum mínum núna er þó að klára þessi jólakort. En í gær var gerð heiðarleg tilraun til að skrifa þau. Ég, Ólöf, Vala og Inga hittumst með jólaandann í hjarta en lítið varð um skrif og skelltum okkur því bara í bíó enda urðum við að tékka á George hennar Ólafar.
Hvernig er það annars með jólatré? Í fyrra fór ég ásamt Ólöfu þar sem við "veiddum" okkur jólatré í Vatnaskógi en það verður ekki leikið eftir í ár þannig að spurningin mín er, á ég að fara kaupa mér lifandi jólatré eða á ég að nota gervitréð sem ég á og eyða þá frekar þeim peningi sem sparast í e.a. annað? Kannski skó? Hvort endist lengur skórnir eða tréð, kannski eru skór líka dýrari, nema ég ákveði að kaupa risa tré, þá kemur þetta bara slétt út. Er það ekki annars?
Jólatrés veiðar 2003

2 Comments:

  • At 6:24 PM, Anonymous Anonymous said…

    Sæl frænka, og takk fyrir jólakortið. Ég klikkaði alveg á jólakortunum í ár, svo ekki bíða spennt... Ástæðan er ógurlegur skortur á jólaskapi og einnig var mikið um að vera hjá óléttri eiginkonu minni. Henni var skipað að liggja fyrir vikurnar fyrir jól, svo ég gerði lítið annað en að stjana við hana. Svo á þriðja í jólum varð að skera, 11 vikum fyrir tímann. Það heppnaðist vel, bæði móður og dóttur heilsast vel. Myndir á www.picturetrail.com/bjorn_bondi

     
  • At 9:45 AM, Blogger irusvirus said…

    Hæ Katla.
    Takk fyrir ólýsanlega flott jólakort og frábært spilakvöld.
    Kyss kyss
    -Irish kiss

     

Post a Comment

<< Home